Review of Three Billboards Outside Ebbing, Missouri (2017) by Jón J — 25 Feb 2018
Hér fyrir neðan er stutt gagnrýni fyrir Three Billboards Outside Ebbing, Missouri ;).
Nú þegar Óskarinn fer að nálgast eru bíósalir landsins að springa undan glænýjum, stundum skrítnum en oftast áhugaverðum myndum. Ein sú mest áberandi í þessu kapphlaupi er Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Að mínu mati hefur Three Billboards líklegast aðeins einn áberandi galla: frekar langt, óþjált nafn.
Þetta er þriðja kvikmyndin í fullri lengd sem er leikstýrð af Martin McDonagh, sem gerði þar á undan In Bruges og Seven Psychopaths (báðar frábærar á sinn hátt. Má með sanni segja að hér hefur Martin náð sínum toppi (vonandi hingað til) en hér sameinast frábær leikstjórn, ótrúlegur leikarahópur, átakanleg saga og tilfinningaþrungið andrúmsloft. Grunnur sögunnar er barátta einnar konu við lögregluna í Ebbing, Missouri. Hins vegar fléttast inn í þetta barátta við kerfið í heild sinni, bæinn sjálfan, sorg, söknuð og mismunun. Það besta við söguna er hversu mikil persónusköpun á sér stað þrátt fyrir mergðina af flóknum, áhugaverðum persónum.
Úr leikarahópnum eru að mínu mati hápunktarnir tveir: Frances McDormand og Sam Rockwell. McDormand leikur eina hörðustu, flottustu persónu sem ég hef séð lengi, og er ógleymanleg í sínu hlutverki. M.v. þær myndir sem ég hef hingað til séð (margar eftir, hins vegar) er engin leikkona sem á meira skilið Óskarinn fyrir sitt hlutverk. Rockwell leikur hins vegar hlutverk sem ég hef sjaldan séð en vil ég ekki fara nánar út í hans persónuleika svo það komi sem mest á óvart. Þetta eru einungis hápunktarnir en allt leikaraliðið stendur sig prýðilega.
Three Billboards er ein allrabesta mynd ársins 2017, sem var almennt séð mjög sterkt kvikmyndaár. Endilega kíkið á hana meðan að sýningar eru í gangi, ekta mynd til að skella sér á í bíó ;).
This review of Three Billboards Outside Ebbing, Missouri (2017) was written by Jón J on 25 Feb 2018.
Three Billboards Outside Ebbing, Missouri has generally received very positive reviews.
Was this review helpful?
